Um Ólafíu Jóhannesdóttur
Föstudaginn 16. júlí, 2004 - Morgunblaðið -Menningarlíf
Söguferð | Farið á söguslóðir Ólafíu Jóhannsdóttur
Starf hennar var hljóðlegt en mikilvægt
"EIN SAGA er geymd" nefnist ferð sem farin verður á söguslóðir Ólafíu Jóhannsdóttur á morgun. Lagt verður af stað frá Sundahöfn kl.
Spurð um tilefni ferðarinnar segir Guðrún Ásmundsdóttir að sig langi til að gera sitt til að halda nafni þessarar merkilegu konu á lofti. "Saga hennar á svo mikið erindi við okkur í dag, því Ólafía vann sitt hljóðlega en mikilvæga starf þegar hún sinnti þeim aumustu og minnstu í þjóðfélaginu." Guðrún hefur löngum heillast af sögu Ólafíu og skrifaði um hana leikverk sem sýnt var fyrir fullu húsi í Fríkirkjunni og Iðnó sl. haust. "Því miður áttum við ekki kost á að sýna fleiri en tíu sýningar og þurftum að hætta fyrir fullu húsi. Því blundar enn í mér sá draumur að taka sýninguna upp aftur," segir Guðrún, en í ferðinni á morgun verða m.a. leikin stutt atriði úr leikverki Guðrúnar.
Ólafía Jóhannsdóttir, sem fæddist árið 1863, hefur af sumum verið kölluð Móðir Theresa norðursins. Á árunum milli 1903 og 1920 dvaldist hún í Noregi þar sem hún vann stórvirki í krafti trúar sinnar meðal hinna aumustu í fátækrahverfi Óslóborgar. Vegna þessa starfs reistu Norðmenn henni minnisvarða sem stendur í miðri Ósló, nánar tiltekið við Brugatan. Gefur þar að líta brjóstmynd af Ólafíu í íslenskum peysufötum og með skotthúfu, en undir myndinni er letrað: "Ólafía Jóhannsdóttir. Fædd á Íslandi 1864 - d. 1924. De ulykkeliges ven (Vinur hinna ógæfusömu)."
Ferðin á morgun hefst á því að siglt verður út í Viðey, en þar ólst Ólafía upp í skjóli Ólafs og Sigríðar Stephensen. Í eynni verða leikin stutt atriði úr lífi Ólafíu í Viðey og sagðar sögur, auk þess sem kirkja staðarins verður skoðuð. Eftir stutta gönguferð um eyjuna verður farið í Viðeyjarstofu þar sem boðið verður upp á léttan hádegisverð. Að því loknu verður farið í land og keyrt með gesti upp að Mosfelli þar sem Ólafía fædist þann 22. október 1863, en faðir hennar, séra Jóhann Knútur Benediktsson, var þá prestur á Mosfelli. Eftir sögur og leik að Mosfelli liggur leiðin á Árbæjarsafn, þar sem sögumenn sýna farþegum hús sem lítur eins út og Tobbukot þar sem hin nafnkunna móðursystir Ólafíu, Þorbjörg Sveinsdóttir, bjó með móður sinni, Kristínu Jónsdóttur. En þær mæðgur veittu Ólafíu skjól á unglingsárum hennar, allt þar til hún yfirgaf Ísland snemma á tuttugustu öldinni og hóf sitt merka líknarstarf í Noregi sem Norðmenn minnast enn þann dag í dag. Gert er ráð fyrir að ferðinni ljúki um fjögurleytið. Skráning og allar nánari upplýsingar eru í síma 551 4715 eða 8984385.



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home